Fréttir

Um innritun barna í leikskólann

Um innritun barna í leikskólann
Kópavogsbær annast innritun barna í Aðalþing samkvæmt þjónustusamningi leikskólans við bæinn. Sótt er um leikskóladvöl á vef bæjarins. Aldur barna stýrir forgangsröðun við innritun. Eldri börn fá úthlutað leikskólaplássi á undan þeim sem yngri eru. Lengd biðlista hverju sinni ræður því hveru ung börn hefja leikskólagöngu í Aðalþingi á haustin. Undanfarin ár haf yngstu börnin sem innrituð haf verið í Aðalþing verið u.þ.b. tveggja ára.
Lesa meira

Ný gjaldskrá fyrir leikskóla

Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt breytingar á gjöldum leikskóla frá 1. janúar 2018.
Lesa meira

JÓLAKRÆSINGARNAR 2018 - KOMNAR Í SÖLU

Jólakræsingararnar okkar og jólarauðkálið verður selt núna fyrir jólin eins og venjulega. Salan fer fram á næstu dögum og vörurnar verða afhentar 20. desember. Söluform er hér og sala hefst í dag.
Lesa meira

Hættulegt fæðuofnæmi

Núna eru í leikskólanum börn með lífshættuleg fæðuofnæmi. Örlítil snefill af sumum efnum getur vakið ofnæmisviðbrög. Því er áríðandi að hvorki börn, foreldrar eða gestir komi með neitt matarkyns með sér inn í skólann.
Lesa meira

Eldvarnaskoðun án athugasemda

Eldvarnaskoðun fór fram í Aðalþingi í gær. Okkur hefur borist skýrsla um skoðunina með svohljóðandi yfirlýsingu: Við eldvarnaskoðun þann 12.9.2018 kom í ljós að eldvarnir húsnæðisins eru án athugasemda. Slökkvilið þakkar lofsverða hirðusemi um veigamikla öryggisþætti og hvetur ykkur jafnframt til að halda áfram því sem vel er gert.
Lesa meira

Opið til klukkan 16:30

Í samræmi við reglur Kópavogsbæjar lýkur daglegri starfsemi Aðalþings klukkan 16:30 frá og með 1. ágúst 2018. Þannig er þetta í flestum leikskólum í Kópavogi. Til að sem flest ný börn geti hafið skólagöngu sem fyrst núna í haust er nýjum börnum boðin dvalartími til að byrja með, á bilinu frá klukkan 8 til klukkan 16. Aðlögun tuttugu og tveggja barna hefst þriðjudaginn 14. ágúst. Ekki hefur verið ákveðið hvenær við getum tekið við þeim börnum sem bíða eftir að hefja aðlögun.
Lesa meira

Sumarfrí 2018, þann sjötta júlí

Föstudaginn sjötta júlí hefst sumarfrí í leikskólanum klukkan 12:30 samkvæmt venju í Kópavogi. Við opnum aftur þriðjudaginn eftir verslunarmannahelgi á sama tíma, klukkan 12:30.
Lesa meira

Laus störf

Í Fréttablaðinu í dag, 12. maí, auglýsum við laus störf í Aðalþingi.
Lesa meira

Loakað sumardaginn annan - 20. apríl.

Leikskólinn er lokaður vegna skipulagsdags 20. apríl. Megnið af starfsfólkinu okkar situr núna fyrirlestra og skoðar leikskóla Svíþjóð. Eins og áður mun þessi námsferð skila sér með karftmikilli þróun á skólastarfinu í Aðalþingi.
Lesa meira

Rannsókn Aðalþings um áhrif jafnara kynjahlutfalls í starfsmannahópnum á leikskólastarfið

Í tilefni af degi leikskólans segjum við frá því að í Aðalþingi hefur verið skilað til Jafnréttissjóðs skýrlu um rannsókn okkar þar sem reynt var að svara spurningunum: Hvernig áhrifa má gæta í leikskólastarfi þar sem hlutfall karlmanna er hátt í starfsmannahópnum?

Lesa meira

Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook