Börn í Aðalþingi með góða færni samkvæmt skimunarprófinu Hljóm-2

Í stefnu Kópavogs um mál og lestur í leik- og grunnskólum, frá árinu 2016, er stefnt að því að við lok skólaársins 2020 hafi 90%, fimm ára barna öðlast meðal- eða góða færni samkvæmt skimunarprófinu Hljóm-2.

Í vor var skimunarprófið Hljóm-2 lagt fyrir 5 ára börn í Aðalþingi,  niðurstöður sýna að 89% barnanna hafi öðlast meðal- eða góða færni samkvæmt prófinu og við höfum því verið við markmið stefnunar öll árin síðan að stefnan var sett.

Á þessum fjórum árum sem liðin eru síðan Kópavogsbær setti þessa stefnu haf 92,4% fimm ára barna í Aðalþingi náð því markmiði að öðlast meðal- eða góða færni samkvæmt skimunarprófinu Hljóm-2.

Eitt af leiðarstefjum leikskólans Aðalþings er að hvetja og hjálpa barninu að finna hvað vekur áhuga hjá því, hvað því finnst skemmtilegt. Aðalþing byggir á skapandi skólastarfi þar sem námsumhverfi leikskólans tekur mið af því að börnin séu virk og læri í gegnum leikinn í víxlverkan umhverfis og sjálfs. (Skólanámskrá Aðalþings 2018-2019). Læsi er  einn af grunnþáttum menntunar samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla (2011), í Aðalþingi er fundinn snertiflötur á leik, læsi og máli (e. play-literacy nexus) og þannig unnið með læsi samkvæmt hugmyndum Roskos og Christie (2011).

Hljóm-2 er greiningartæki, aldursbundin skimun sem er lögð fyrir til að meta hljóðkerfis- og málmeðvitund barna í elsta árgangi leikskólans í því skyni að greina þau börn sem eru í áhættu fyrir síðari lestrarerfiðleika. Slök hljóðkerfis- og málvitund er talin aðalorsök lestrarvanda hjá 88% barna. Í leikskólanum er sérstaklega unnið með þeim börnum sem mælast með slaka eða mjög slaka færni.

 


Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook