Skipulagsdagur vegna COVID 19 - mánudaginn 16.03.2020

Af heimasíðu Kópavogsbæjar:
 
Skólahald takmarkað tímabundið vegna COVID-19.
Heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur meðal annars í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
 
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu vinna nú að skipulagningu skólastarfs miðað við ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16.mars verði skipulagsdagur í grunn- og leikskólum á höfuðborgarsvæðinu til þess að stjórnendur og starfsmenn grunn- og leikskóla geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.
 
Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn meðal annars á heimasíðum sveitarfélagnan og heimasíðum grunn- og leikskóla. Þá eru í undirbúningi sameiginlegar leiðbeiningar sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um frístundaheimili, íþróttastarf, íþróttamannvirki, skólahljómsveitir, og aðrar tómstundir barna.

Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook