Úthlutun vegna barna fædd árið 2021 og eldri

Upphafleg frétt: Úthlutun vegna barna fædd árið 2021 og eldri í leikskólum Kópavogs hefst um miðjan mars. Gert er ráð fyrir því að seinni hluti úthlutunar fari fram í maí. Í seinni hluta úthlutunar verður farið yfir nýjar umsóknir og flutningsumsóknir sem berast eftir 15. mars og umsóknir barna fædd árið 2022.

Fyrra úthlutunartímabilið stendur yfir í um það bil þrjár vikur og fá foreldrar úthlutunarbréf rafrænt á meðan á því stendur.

Ekki liggur fyrir að svo stöddu hversu mörg börn fædd árið 2022 fá úthlutað fyrir haustið 2023. Nánari upplýsingar um úthlutun vegna barna fædd árið 2022 verða veittar þegar líður nær seinni hluta úthlutunar.

Kópavogsbær rekur 19 leikskóla en að auki eru tveir einkareknir og einn þjónusturekinn leikskóli í bænum. 

Sótt er um leikskólapláss í þjónustugátt Kópavogsbæjar

Uppfært 10.4.2023.
Úthlutun til barna um pláss í Aðalþingi haustið 2023 er nú lokið af hálfu Kópavogsbæjar. Þær fjölskyldur sem ekki hafa fengið boð um skólavist komast væntanlega ekki að í Aðalþingi þetta haustið. Litlar breytingar geta orðið ef þeir sem hafa fengið boð afþakka. Í slíkum tilfellum myndi sveitarfélagið úthluta í samræmi við úthlutunarreglur sem fyrst og fremst taka mið af aldri. Foreldrum er ætíð velkomið að hafa samband við okkur ef þeir óska nánari upplýsinga.


Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook