Sumarfrí og elstu börnin hætta

 

Þann fjórða júlí hefst sumarfrí í leikskólanum klukkan 12:30 samkvæmt venju í Kópavogi. Við opnum aftur þriðjudaginn eftir verslunarmannahelgi á sama tíma, klukkan 12:30.

Elstu börnin koma ekki í leikskólann aftur eftir sumarfrí því nú er boðið upp á nýbreytni í bænum sem eru úrræði í sumardvöl dægradvalar grunnskólanna. Foreldrar sem þess óska geta því að einhverju leyti brúað bilið milli leikskóla og upphafs grunnskólans með því að nýta þá þjónustu.

Foreldrar elstu barnanna þurfa því ekki að segja upp skólavistinni formlega nema börnin hætti fyrir sumarfrí. Gengið verður út frá því að öll elstu börn hætti um sumarfrí ef ekki kemur til þess að þau hætti fyrr.


Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook