Opið til klukkan 16:30

Í samræmi við reglur Kópavogsbæjar lýkur daglegri starfsemi Aðalþings klukkan 16:30 frá og með 1. ágúst 2018. Þannig er þetta í flestum leikskólum í Kópavogi.
 
Til að sem flest ný börn geti hafið skólagöngu sem fyrst, núna í haust, er nýjum börnum boðin dvalartími á bilinu frá klukkan 8 til klukkan 16 til að byrja með.
 
Aðlögun tuttugu og tveggja barna hefst þriðjudaginn 14. ágúst. Ekki hefur verið ákveðið hvenær við getum tekið við þeim börnum sem bíða eftir að hefja aðlögun.

Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook