Flýtilyklar
Minningarsöfnun í nafni Harðar Svavarssonar
21.05.2026
Hörður Svavarsson, fyrrverandi leikskólastjóri á Aðalþingi til 15 ára, lést í júní á síðasta ári, 65 ára að aldri, eftir snarpa baráttu við krabbamein. Hörður sinnti starfi sínu af mikilli alúð og natni og byggði upp afar öflugt og metnaðarfullt leikskólastarf með frábæru starfsfólki.
Margir hafa haft samband og viljað heiðra minningu Harðar og það mikilvæga starf sem hann vann í gegnum árin. Í samstarfi við Kópavogsbæ stendur nú til að ráðast í endurbætur á leikskólalóðinni í sumar, þar sem bætt verður við og endurnýjuð leiktæki á meðan leikskólinn er í sumarfríi.
Foreldrafélag leikskólans hefur ákveðið að efna til söfnunar fyrir gróðurhúsi í nafni Harðar sem verður staðsett í bakgarði leikskólans og mun nýtast börnum til leiks og lærdóms. Hörður hafði lengi haft áhuga á að koma upp slíku gróðurhúsi og þykir okkur því sérstaklega viðeigandi að láta þá hugmynd hans, og teymisins á Aðalþingi, verða að veruleika. Í framtíðinni munu börnin þá geta ræktað plöntur og grænmeti í gróðurhúsinu í nafni sjálfbærni sem er samtvinnuð inn í allt leikskólastarfið.
Við hvetjum alla sem vilja taka þátt til að leggja sitt af mörkum með framlagi inn á reikning foreldrafélagsins, 0357-22-010454, kennitala 531109-1980, fyrir 10. júní.
Stefnt er að því að halda hátíðlega vígslu á lóð leikskólans í Aðalþingi síðsumars eða í byrjun hausts, þar sem ný leiktæki verða tekin í notkun og, vonandi, gróðurhúsið einnig opnað. Nánari tímasetning verður auglýst þegar nær dregur.
