Flýtilyklar
Harðarhöll er orðin að veruleika ❤️
Kæru vinir,
Í vor stóð foreldrafélag Aðalþings fyrir söfnun til minningar um Hörð Svavarsson, sem var leikskólastjóri á Aðalþingi í 15 ár og lést langt fyrir aldur fram í júní á síðasta ári.
Við erum ótrúlega þakklát fyrir þær góðu viðtökur sem söfnunin fékk og viljum þakka öllum kærlega sem lögðu henni lið. Fyrir það sem safnaðist hefur nú verið keypt gróðurhús sem komið hefur verið fyrir í bakgarði leikskólans í góðu samstarfi við Kópavogsbæ og mun það bera nafnið Harðarhöll, til minningar um Hörð.
Hörður hafði lengi haft áhuga á að koma upp gróðurhúsi við leikskólann og því er sérstaklega ánægjulegt að sjá þessa hugmynd hans og starfsfólksins á Aðalþingi loksins verða að veruleika. Þar munu börnin geta ræktað plöntur og grænmeti, lært og leikið sér og notið hússins um ókomin ár.
Nú langar okkur að fagna þessum áfanga saman og bjóðum því til opins húss á Aðalþingi fimmtudaginn 15. október kl. 17–18, þar sem við ætlum að opna Harðarhöll formlega.
Við vonum að sem flestir sem þekktu Hörð lögðu söfnuninni lið sjái sér fært að koma, skoða Harðarhöll og eiga með okkur góða stund í minningu Harðar.
Fimmtudagur 15. október, kl. 17–18
Aðalþing
Hlökkum til að sjá ykkur ❤️
