Agnes Gústafsdóttir ráðin aðstoðarskólastjóri

Það gleður okkur að tilkynna að Agnes Gústafsdóttir hefur hafið störf sem aðstoðarleikskólastjóri í leikskólanum Aðalþingi.

Agnes er leikskólakennari, með M.ed. gráðu í leikskólakennarafræðum frá háskóla Íslands. 
Hún hefur góða reynslu af leikskólastarfi en hún hóf störf í Heilsuleikskólanum Urðarhóli 2008 og vann síðar í leikskólanum Álfasteini í Hafnarfirði. Agnes tók einnig viðbótarnám í grunnskólakennarafræðum og vann síðast sem umsjónarkennari í Setbergsskóla.

Við þekkjum Agnesi vel því hún var vettvangsnemi í Aðalþingi í nokkur misseri árin 2016 til 2018. Við bjóðum hana velkomna til starfa í stóran kennarahópinn í leikskólanum okkar.


Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook