Aðalþing hlýtur styrk úr Sprotasjóði til þróunar á gervigreindar-studdu matskerfi

Aðalþing hefur hlotið styrk úr Sprotasjóði 2025, til að þróa nýtt innra matskerfi sem nýtir gervigreind (AI) til að greina og vinna með gögn úr skólastarfinu. Verkefnið miðar að því að dýpka skilning á starfinu og styðja við ígrundun starfsfólks með því að greina mynstur í starfsháttum og tengja þau við námskrár og stefnu skólans.

Markmiðið er að byggja á þeim gögnum sem leikskólinn safnar nú þegar — einkum vikulegum póstum deilda — og þróa greiningartól sem nýtist starfsfólki í daglegu starfi án þess að auka álag. Með því að nýta gervigrein, ekki aðeins til að flokka gögn heldur einnig til að varpa fram lykilspurningum og sýna fram á tengsl við námskrár, skapast öflugur grunnur fyrir markvissari ígrundun og þróun skólastarfsins.

Með þessum styrk fær Aðalþing tækifæri til að vera í fararbroddi í notkun nýrrar tækni við innra mat í leikskólastarfi og leggja grunn að aðferðum sem hægt verður að miðla til fleiri leikskóla á landinu.

Verkefnið verður unnið í samstarfi við Kristínu Dýrfjörð dósent við Háskólann á Akureyri og Guðrúnu Öldu Harðardóttur, doktor í leikskólafræðum, sem ásamt Herði Svavarssyni leikskólastjóra og öðrum stjórnendum í Aðalþingi leiða verkefnið.


Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook