Flýtilyklar
Að finna taktinn - ráðstefna um hæglæti í leikskólastarfi í dag
Í dag kl. 13 fer fram ráðstefnan Að finna taktinn í Háskólabíó þar sem sjónum verður beint að hæglæti í leikskólastarfi og mikilvægi þess fyrir börn, starfsfólk og menningu leikskóla. Á ráðstefnunni koma saman alþjóðlegir fræðimenn, íslenskir rannsakendur og starfandi leikskólakennarar til að fjalla um hvernig hægt sé að skapa meiri ró, dýpri tengsl og merkingarbærara nám í daglegu starfi með börnum.
Meðal fyrirlesara er Alison Clark, höfundur bókarinnar Slow Knowledge and the Unhurried Child, sem hefur verið leiðandi rödd í umræðu um hæglátt leikskólastarf á alþjóðavettvangi. Þá munu fræðimenn fjalla um tengsl hæglætis við forystu, samskipti og fagmennsku í leikskólum.
Það sem ber hæst á ráðstefnunni eru niðurstöður þróunar- og rannsóknarverkefnisins Stilla – hæglátt leikskólastarf, þar sem fjórir íslenskir leikskólar hafa innleitt hæglæti í daglegt starf sitt. Niðurstöðurnar sýna að hæglæti er ekki einfaldlega spurning um að hægja á, heldur fagleg og siðferðileg afstaða sem hefur áhrif á skipulag, samskipti og menningu leikskóla.
Rannsóknir verkefnisins benda meðal annars til þess að þegar börn fá meiri tíma og rými til leiks og könnunar verði leikur þeirra dýpri og merkingarbærari. Jafnframt eykst sjálfstjórn barna, félagsfærni og þátttaka þeirra í daglegu starfi.
Hæglæti í leikskólastarfi snýst um að finna „réttan takt“ í starfi með börnum. Í stað þess að dagskipulag og klukkan ráði ferðinni er lögð áhersla á að hlusta á áhuga barna, skapa samfellu í námi og gefa tíma til tengslamyndunar og leikja. Með því skapast meira jafnvægi, meiri ró og sterkari tengsl milli barna og fullorðinna.
Ráðstefnan er haldin í tengslum við verkefnið Stilla – hæglátt leikskólastarf, sem unnið hefur verið í samstarfi leikskólana Aðalþing, Iðavöll, Ugluklett, og Rauðhól og fræðimanna frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Akureyri og erlendum samstarfsaðilum. Markmiðið er að opna fyrir mikilvæga umræðu um tíma, gæði og fagmennsku í leikskólastarfi og styðja við þróun leikskóla þar sem áhersla er lögð á tengsl, leik og vellíðan barna.
