Leitin að leikskólakennurum er hafin
Leikskólakennarar með áhuga á að vinna í anda Reggio Emilia
og löngun til að njóta betri kjara, óskast til starfa við leikskólann Aðalþing
með haustinu eða fyrr...
Leikskólinn Aðalþing gerði kjarasamning við Félag leikskólakennara sem félagið metur 9 til 12 prósentum hagstæðari fyrir kennara en samninga í öðrum leikskólum. Markmið með samningnum er m.a. að fjölga starfandi kennurum við skólann og okkur gengur vel á þeirri leið, því leikskólakennarar vilja vinna saman að sameiginlegum markmiðum. Við stundum lýðræðisleg vinnubrögð, höfum skýra framtíðarsýn og við hlökkum til morgundagsins. Vilt þú koma í hópinn?
Hæfniskröfur:
- Starfsréttindi leikskólakennara.
- Áhugi á að starfa i anda Reggio Emilia eða að kynnast slíkum starfsháttum og efla sig i starfi.
- Góðir samskiptahæfileikar og glaðlyndi.
- Metnaður til að efla leikskólastarf á Íslandi og bæta aðstæður kennara.
Við bjóðum m.a:
- Frábæran hóp samstarfsmanna og góðan starfsanda.
- Betri kjör.
- Lengra frí milli jóla og nýárs.
- Sömu lifeyrisréttindi og sveitar-félögin.
- Lýðræðisleg vinnubrögð.
- Metnaðarfullt starfsumhverfi.
Umsóknarfrestur er til 25. maí. Nánari upplýsingar eru á þessari slóð. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Hörð Svavarsson skólastjóra í
síma 515 0930 eða á netfangið hordur@adalthing.is
Þjónustusamningur um Aðalþing framlengdur
Það gleður okkur að tilkynna að þann 23. apríl skrifaði sviðsstjóri Menntasviðs Kópavogsbæjar, Anna Birna Snæbjörnsdóttir og framkvæmdastjóri Sigöldu ehf, Guðrún Alda Harðardóttir undir viðauka við þjónustusamning um leikskólann Aðalþing. Á bæjarstjórnarfundi í dag var viðaukinn samþykktur. Viðaukinn felur það í sér að þjónustusamningurinn framlengist til fimm ára.
Við uppskerum auðvitað niðurskurð á fjárframlögum eins og svo margir í samfélaginu þurfa að taka á sig um þessar mundir. Upphaflegur þjónustusamningur um Aðalþing var gerður eftir að fjármálahrunið skall á og var enginn bruðlsamningur og nú munum við sýna að við getum gert enn betur í rekstraskipulagi, jafnframt því að standa algjörlega við þann frábæra kjarasamning sem við gerðum við leikskólakennara í Kennarasambandi Íslands. Það er ögrandi áskorun, sem við tökumst á við með gleði.
Af mörgum ástæðum hafa viðræður við bæinn staðið lengi yfir og beðið hefur verið með að ljúka mörgum úrlausnarefnum þar til niðurstaða fengist í þetta mikilvæga mál sem er grundvöllur skólastarfsins í Aðalþingi. Þróun á ýmsum þáttum skólastarfsins hefur setið á hakanum en nú liggur þessi jákvæða niðurstaða fyrir og ekkert annað í spilunum en að láta hendur standa fram úr ermum.
Skipulagsdagur fyrir hádegi föstudaginn 11. maí
Eins og kemur fram í skóladagatali Aðalþings er skipulagsdagur fyrir hádegi næsta föstudag.
Þá opnum við leikskólann klukkan 12:30
Við leitum að metnaðarfullum forystumanni
til að standa að hágæða skólaeldhúsi

Foreldraþing hefjast
Foreldraþing hefjast samkvæmt skóladagatali í þessari viku. Foreldraþing er sameiginlegur vinnufundur foreldra og starfsfólks í Aðalþingi. Þar verður rætt um nýja Aðalnámskrá fyrir leikskóla og hvernig foreldraþingið vill útfæra hana í Aðalþingi.
Fundartímar voru ákveðnir eftir samráð við Foreldraráð. Þingin hefjast klukkan 20 og þeim verður lokið klukkan 22.
Fyrst verður þingað með fulltrúum Hrafnaþings á miðvikudagskvöld (25. apríl), kvöldið eftir koma fulltrúar Spóaþings saman. Í næstu viku funda fulltrúar Lóuþings og Rjúpnaþings, einnig á miðvikudags- og fimmtudagskvöl.
Skipulagsdagur 20. apríl
Föstudaginn 20. apríl verður skipulagsdagur í Aðalþingi. Þá er skólinn lokaður.
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna
Stúlkurnar funda um málefnið
Arið 1975 skilgreindu Sameinuðu þjóðirnar 8. mars sem alþjóðlegan baráttudag kvenna fyrir friði og jafnrétti en víða hefur verið haldið upp á daginn frá árinu 1909. Í Aðalþingi hefur verið siður að hugsa um daginn með elstu stúlkunum. Stúlkurnar funduðu og að loknum fundi barst skólastjóra eftirfarandi fundargerð:
Alþjóðlegur baráttudagur kvenna 8. mars.
Fundur með stúlkum á Hrafnaþingi.
Fundargerð
Þetta var rætt:
- Konur eiga að spara peninga.
- Konur geta lesið bók um frið.
- Það þarf að biðja karlana fallega um jafn mikla peninga.
- Það á enginn að berjast.
- Konur eiga að vera vinir til að heimurinn viti að það er best.
- Konur og karlar eiga að slappa af.
- Konur geta gert allt!
- Konur eru bestar í kjól.
Fundinum lauk með því að íslenski fáninn var dreginn að húni í tilefni dagsins.

Horft á fána...
Takk fyrir
kæru foreldrar
Í nóvember gáfum við út yfirlýsingu sem fól í sér stefnumökun um að iOS væða tölvu og upplýsingakerfi Aðalþings, en iOS er stýrikerfi fyrir tæki á borð við iPad, iPodTouch og iPhone.
Þessi ákvörðun var tekin eftir töluverðar umræður og vangaveltur meðal starfmanna skólans en kerfinu er ætlað að hald utan um tónlistarsafn, myndasafn og önnur gagnasöfn og upplýsingagrunna auk þess sem kerfið verður nýtt til samskipta og upplýsingamiðlunar.
Það er auðvitað verðugt verkefni fyrir stofnun á borð við leikskólann okkar að fást við hvernig fjármagna á þróunarverkefni sem þetta. Þó Aðalþing sé rekið samkvæmt þjónustusamningi við bæjarfélagið eru tekjur okkar síst meiri en annarra leikskóla. Við höfum því gripið til þess ráðs að selja afurðir sem við framleiðum við sérstök tækifæri. Samfara matarhátíðinni seldum við rúgbrauð og hummus, í desember keyptu fjölmargir foreldrar myndir af okkur í jólakortin og um jólin seldum við sælkerakræsingar í fallegum gjafaumbúðu.
Það er fagnaðarefni nú þegar þriggja ára afmæli skólans er í sjónmáli að tilkynna að fjáröflunarverkefni okkar hafa skilað því að nú þegar höfum við fengið fjóra iPod Tuch í skólann, einn á hvert þing. Þessi tæki gera okkur kleift að halda utan um tónlistarsafnið, taka ljósmyndir og videó og hafa tölvupóstsamskipti við foreldra í hendi okkar. Þetta fyrsta skref í nýrri tæknivæðingu okkar er afar ánægjulegt.
Takk fyrir kæru foreldrar.
Skipulagsdegi frestað
Skipulagsdegi sem dagsettur var á skóladagatali mánudaginn 5. mars er frestað til föstudagsins 20. apríl.
Skipulagsdagur fyrir hádegi 24. febrúar
Föstudaginn 24. febrúar er skipulagsadagur fyrir hádegi í Aðalþingi. Þá opnar leikskólinn klukkan 12:30.
Skrifstofa Aðalþings lokuð
Vegna veikinda fjölda starfsfólks er skrifstofa Aðalþings lokuð í dag. Það verður því ekki unnt að svara síma eða tölvupósti í dag, miðvikudaginn 8. febrúar.
Dagur leikskólans
Mánudaginn 6. febrúar er dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. Þessi dagur er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því 6. febrúar árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.
Klukkan 8 í morgun drógum við fána að húni í Aðalþingi til að minnast þessara tímamóta.
Farið varlega
Fimmtudagur 26.1.2012 kl. 7:20
Mikil ófærð er nú á höfuðborgarsvæðinu og lögregla segir ófært úti um alla borg eftir gríðarlegt fannfergi í nótt, þannig séu stórir bílar eins og jeppar fastir hér og þar. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um að loka skólum en ljóst er sumir starfsmenn í Aðalþingi komast ekki til vinnu fyrr en líða tekur á morguninn. Við biðjum fólk að fara varlega áður en það heldur af stað út í þessum aðstæðum og fylgjast vel með fréttum.
Sumarfrí 2012
6. júlí til 7. ágúst
Samkvæmt ákvörðun Leikskólanefndar kópavogs verða leikskólar í Kópavogi lokaðir í fjórar vikur í sumar. Aðalþing verður lokað frá hádegi föstudaginn 6. júlí og opnar aftur á hádegi þriðjudaginn eftir verslunarmannahelgi, sem er 7. ágúst.
Vegna skipulags næstu ára má taka fram að meðan sá háttur verður hafður á að leikskólar í Kópavogi loki í fjórar vikur má gera ráð fyrir því að við höfum alltaf lokað fjórar seinustu vikurnar fyrir verslunarmannahelgi.
Áhrif nýfrjálshyggju
á íslenskt leikskólastarf
Kristín Dýrfjörð er mörgum í Aðalþingi að góðu kunn, en hún annaðist skólastjórn í leikskólanum okkar árið 2010 í námsleyfi Guðrúnar Öldu. Aðalstarf Kristínar er háskólakennsla í leikskólafræðum við Háskólann á Akureyri en háskólakennarar sinna eins og kunnugt er rannsóknar og ritstörfum. Í dag birtist grein um leikskólamál eftir Kristínu í tímariti Félagsfræðingafélags Íslands, Íslenka þjóðfélagið.
Í greininni er leitast við að skoða áhrif nýfrjálshyggjunnar á íslenska leikskólakerfið. Lykilskjöl um málefni leikskólans eru skoðuð með greiningarlykil Hursh og aðferðafræði orðræðugreiningar að leiðarljósi. Meðal þessara skjala er framtíðarsýn Viðskiptaráðs Íslands, Ísland 2015. Rýnt er í þær hugmyndir sem þar koma fram og þær settar í samhengi við þróun lagaramma og opinberra tilmæla um leikskólann hérlendis. Lögum leikskóla, reglugerðir og ýmsar skýslur sem snúa að leikskólastarfi eru einnig skoðaðar. Niðurstaðan er að áhrif nýfrjálshyggjunnar séu mjög greinileg á umgjörð leikskólastarfs eftir síðustu aldamót, og að hugmyndafræði hennar hafi orðið fyrirferðarmeiri og haft mótandi áhrif á leikskólann. Þau áhrif kristölluðust í lögum um leikskóla 2008 og hafa sýnt sig í framkvæmd þeirra.
HS. 28.12.2011.
Skipulagsdagur 2. janúar
Vegna fjölda áskoranna frá foreldrum hefur verið ákveðið að skipulagsdagur sem tímasettur var 3. janúar til samræmis við grunnskólann, verði færður til mánudagsins 2. janúar 2012. Leikskólinn verður því lokaður 2. janúar en opnar aftur klukkan 7:30 þriðjudaginn 3. janúar.
Þingforseti fæðir barn
Eins og allir vita er lýðræðishefðin mjög sterk í Aðalþingi, bæði í orði og verki. Þannig bera t.d. deildirnar í Aðalþingi nafnið þing og þeir sem þar eru í forsvari hafa stöðuheitið þingforseti. Þetta stöðuheiti var formlega staðfest í nýgerðum kjarasamningi við Félag leikskólakennara og má segja að stöðuheitið hafi hlotið við það nokkurn vegsauka, nú er það ekki bara notað á Alþingi heldur líka í okkar mikilvægu menntastofnun.
Þetta er allt tíundað hér vegna þess að hinn 14. desember síðastliðinn, klukkan 00.46 fæddi Sigurlaug Þóra Kristjánsdóttir þingforseti á Lóuþingi, gullfallega dóttur sem var 14 merkur og 49 sentímetrar. Allt gengur vel hjá móður og barni og þeim heilsast vel. Það er mikið fagnaðarefni. Til hamingju Sigurlaug og fjölskylda.

Sælkeraviðbót í jólamatinn
Nú gefst þér kostur á að upplifa bragðið sem börnin elska. Í tilefni af jólunum seljum við heimagert rauðkál, sultaðan lauk, sælkera nautasoð og fisksoð.
Matarstefnan og maturinn í Aðalþingi er frægur. Hjá okkur er allt unnið frá grunni, engin rotvarnarefni eru í matnum eða óþarfa aukaefni. Börnin elska matinn frá Bjössa og foreldrarnir þekkja hann vel.
Við höfum nún sett saman pakkningu með einstöku hátíðarrauðkáli, sultuðum rauðarlauk, nautasoði í sósur eða súpur og fisksoði í súpur og rétti. Allt unnið að Aðalbirni í eldhúsinu með diggri aðstoð kennaranna í Aðalþingi.
Þetta eru sælkeravörur á mun betra verði en í sérvörubúðum og sælkeraverslunum. Í tilefni af jólunum viljum við gefa ykkur tækifæri til að njóta matarsælunnar með okkur og ef svo fer að hagnaður verður af þessu brasi verður honum varið í námsgögn fyrir börnin.
Falleg gjafapakkning með rauðkáli, sultuðum rauðlauk, fisksoði og nautasoði allt í 450 ml. einingum kostar einungis 2300 krónur. Þú pantar á vefnum, færð vöruna afhenta 22. desember og borgar einhverntíma seinna í heimabankanum.
Er þetta ekki dásamlegt?

Ný gjaldskrá fyrir leikskóla
Hinn 1. janúar næstkomandi tekur gildi ný gjaldskrá fyrir leikskóla í Kópavogi. Meðal breytinga í gjaldskránni er það nýmæli að afsláttur vegna náms grundvallast á því að báðir foreldrar séu í námi. Fljótlega má kynna sér gjaldrána nánar á síðu Kópavogsbæjar um gjaldskrá og innheimtu.
Skólastarf milli jóla og nýárs
Mikilvægt er að skrá bókun ef barnið kemur þessa daga
Það færist sífellt í aukana að börn séu í fríi í leikskólanum milli jóla og nýárs.
Undanfarin ár höfum við sett upp spurningalista til að kanna hvaða börn verða ekki í skólanum einhvern þessara daga því það felst hagræðing í því að skipuleggja starfsmannahald og matarinnkaup með réttan barnafjölda í huga.
Foreldrar hafa tekið þessum spurningalistum vel en raunin hefur samt verið sú að börnin sem koma í skólann eru stundum helmingi færri en ætla má af niðurstöðum spurningalistanna.
Nú snúum við því spurningunum við og biðjum þig að bóka pláss fyrir barnið þitt í skólanum milli jóla og nýárs eða þá daga sem þú vilt eiga þess kost að koma með barnið í skólann.
Þetta er einfalt, þú ferð inn á foreldrasíðuna á adalthing.is og fyllir út formið efst í dálkinum hægra megin á síðunni.
Við viljum undirstrika að með þessu fyrirkomulag felst enginn þrýstingur á að barnið þitt verði í fríi, við viljum eingöngu nýta úrræði okkar sem best og kjósum frekar að verja fé í efnivið og námsgögn, frekar en í fæði og starfsmannakostnað vegna barna sem ekki koma í skólann.
Það er mikilvægt að foreldrar fái nokkurn umhugsunarfrest og því verður opið fyrir bókunarkerfið til þriðjudagskvöldsins 13. desember.
Jólaball 17. desember
Hið öfluga Foreldrafélag Aðalþings stendur fyrir jólaballi laugardaginn 17. desember klukkan 14. Skemmtunin fer fram í Hörðuvallaskóla og verður nánar auglýst þegar nær dregur.
Aðalþing í fréttum á Stöð 2
Erlu Hlynsdóttur fréttamanni Stöðvar 2 þótti skólastarfið í Aðalþingi það áhugavert að hún mætti til okkar með myndatökufólk og gerði skemmtilega frétt sem flutt var í fréttatíma stöðvarinnar á laugardagskvöldið. Það er auðvitað gaman þegar því góða starfi sem við stöndum fyrir er hampað.
Desíbelamælar á öll þing
Undanfarið hefur verið nokkur umræða í fjölmiðlum um hljóðvist í leikskólum og heyrnarskemmdir af völdum hávaða í leikskólum. Þetta er ekki nýtt umhugsunarefni fyrir okkur í Aðalþingi en við höfum lagt okkur fram um að halda óæskilegu hljóðáreiti í lágmarki. Við erum svo vel sett að í skólanum eru vönduð kerfisloft sem dempa hljóð og draga úr endurkasti en auk þess er mikilsvert að skipta barnahópnum og deia álagi á húsið og útisvæði jafnt.
Í dag mældum við hljóðstyrk víða í leikskólanum og var hann í öllum mælingum vel innan hættumarka. Við ákváðum jafnframt að fá okkur mælitæki til að mæla hljóðstyrk og staðsetja á öllum þingum. Það er skólastarfinu, starfsfólkinu og börnunum í hag að álagi vegna hávaða sé haldið í lágmarki í Aðalþingi.
Auglýst eftir leikskólakennurum til starfa
Í Fréttablaðinu laugardaginn 26. nóvember er auglýsing um lausar stöður fyrir leikskólakennarar við skólann. Eins og komið hefur fram gerði Sigalda, rekstaraðili Aðalþings, kjarasamning við Félag leikskólakennara sem félagið metur mjög hagstæðan fyrir kennara. Í kjölfarið eru auglýstar stöður við skólann en nánari upplýsingar um stöðurnar verður að finna á þessari síðu

Skipulagsdagur fyrir hádegi 28. nóvember
Mánudaginn 28. nóvember er skipulagsadagur fyrir hádegi í Aðalþingi. Þá opnar leikskólinn klukkan 12:30.
Nýr kjarasamningur við leikskólakennara
Í dag var skrifað undir kjarasamning milli félags leikskólakennara og Sigöldu ehf, sem rekur leikskólann Aðalþing í Kópavog.

Við undirritun kjarasamningsins lét Haraldur F. Gíslason formaður félags leikskólakennara þess getið að það hafi aldrei áður gerst í sögu stéttarfélagsins að gerður sé sérstakur kjarasamningur sem ekki er eftirmynd af samningi félagsins við Samband Íslenskra sveitarfélaga og það í sjálfu sér væru ákveðin tímamót.
Haraldur gat þess jafnframt að félagið hafi látið reikna út kjarabætur sem kennarar í Aðalþingi fá umfram þær launahækkanir sem eru í samningnum við sveitarfélögin. Haraldur sagði að þessar hækkanir væru umtalsverðar enda hlaupa þær á sex til átta launaflokkum eða um 9 til 12 prósentum.
Guðrún Alda Harðardóttir leikskólakennari sem skrifaði undir samninginn fyrir hönd Sigöldu ehf sagði við þetta tækifæri að leikskólinn Aðalþing væri rekinn samkvæmt þjónustusamningi við Kópavogsbæ og það væri markmið samningsins að gefa börnum kost á að njóta handleiðslu sérmenntaðs fólks í uppeldisfræðum og að þróa, efla og auðga leikskólastarf í Kópavogi með því að leita nýrra leiða.
“Með því að gera kjarasamning sem er sérlega hagstæður leikskólakennurunum reynum við að uppfylla þessi mikilvægu markmið þjónustusamningsins” sagði Guðrún. “Við vonum auðvitað að hlutfall menntaðra kennara í starfsliði skólans hækki enda hlýtur kjarasamningurinn að leiða til þess, ef starfskjör skipta kennara einhverju máli”
Opið hús í Aðalþingi
Aðalþing verður opið gestum og gangandi þann 16 nóvember milli klukkan 16 og 17.

Nýtt þing
Í Aðalþingi hefur bæst við eitt þing, sem ekki hefur enn hlotið nafn. Þar breytist upplifun barna af litum og formi. En sjón er sögu ríkari. Á you tube síðunni er líka að finna nýtt myndband um leik úti með vatnsrennibrautir.
Matarhátíð
Við þökkum öllum þeim sem lögðu leið sína hingað í Aðalþing á föstudaginn á matarhátíðina. Eins og foreldrar vita voru börnin búin að undirbúa hana alla vikuna og voru mjög spennt að sýna gestum og gangandi leikskólann sinn og gefa þeim að smakka matinn sem er hér á borðum. Í gær birtist lítil frétt á vefmiðli moggans, hana má finna hér. (25.10.2011).
Við bjóðum þér í mat !
Leikskólinn Aðalþing
heldur Matarhátíð næsta föstudag, þann 21. október
og stendur hún frá kl. 15:30-16:30.
Þá býðst aðstandendum leikskólabarnanna og öðrum gestum að bragða á völdum réttum
sem börnin borða dagsdaglega í Aðalþingi, eins og fiskibollum,
kjötbollum, brauði, jógúrtdrykk o.fl.
Eins og margir vita, er matarmenning ein af undirstöðum leikskólastarfsins í Aðalþingi.
Sérstök áhersla er lögð á að maturinn sé næringarlega vel samsettur og ekki síst
að hann sé unninn frá grunni úr fyrsta flokks hráefni, helst lífrænu og beint frá bónda,
ef þess er kostur.
Með þessu er átt við að aðkeyptir og tilbúnir réttir eru ekki í boði í leikskólanum
og öll brauð eru til dæmis bökuð á staðnum. Sykur er nær ekkert notaður í matreiðslu
og reynt að draga úr notkun salts eins og hægt er. Leikskólinn leggur ennfremur áherslu á
að nýta matinn vel og sem dæmi um það má nefna að afgangar af grænmeti
og kartöflum eru nýttir í brauðin.
Þá eru súpugrunnar soðnir upp af beinum og grænmetisafskurði og svo framvegis.
Einkunnarorð Aðalþings er að maturinn sé hollur, einfaldur og bragðgóður
og fyrst og fremst fyrir börnin.
Á matarhátíðinni verða ennfremur
Aðalþings rúgbrauðin og hummusinn til sölu.
Aðalbjörn varð pabbi
Miðvikudagsmorguninn 28. september varð Aðalbjörn (Bjössi í eldhúsinu) pabbi í þriðja sinn þegar honum og Esteri konunni hans fæddist stór og stæðilegur strákur. Þess vegna hefur Bjössi verið í orlofi í tæpar tvær vikur, en hann kemur aftur til starfa á miðvikudag. Við óskum Bjössa, Esteri og systrunum Láru og Ástu innilega til hamingu með nýja barnið en lýsum því jafnframt yfir að við hlökkum gríðarlega til að fá Bjössa aftur til að gera fyrir okkur mat eins og við viljum hafa hann.
Skipulagsdagur fyrir hádegi 13. október
Fimmtudaginn 13. október er skipulagsadagur fyrir hádegi í Aðalþingi. Þá opnar leikskólinn klukkan 12:30.
Sisæl rugad
Árið 1965 gerðu Sameinuðu þjóðirnar 8. september að alþjóðlegum degi læsis.
Enn einn leikskólakennarinn til liðs við okkur
Þann fyrsta september kom Arnrún Magnúsdóttir leikskólakennari til starfa í Aðalþingi. Arnrún útskrifaðist sem leikskólakennari frá Háskólanum á Akureyri árið 2000, hún starfaði í leikskólum á Akureyri auk þess að kenna við Leikskólakennarabraut HA í tvö ár. Undanfarin ár hefur hún verið í eigin atvinnurekstri með eiginmanni sínum á veitingastaðnum Friðrik V og öðrum veitingastöðum.
Með tilkomu Arnrúnar í starfsmannahópinn eru starfsmenn með starfsréttindi leikskólakennara orðnir 14 í Aðalþingi og er hlutfall þeirra 55% af heildarfjölda þeirra starfsmanna sem vinnur með börnunum. Ef þessi þróun heldur áfram styttist í að við uppfyllum það lágmark sem sett er í lögum um menntun og ráðningu kennara við leikskóla. Við bjóðum Arnrúnu velkomna til starfa.
Og vatnið rennur...

Samvinna í útiveru. Í Aðalþingi klukkan 9:44 í dag föstudaginn 2. september 2011.
Nýtt skipurit
Í ágústbyrjun, við upphaf skólaársins, tók nýtt skipurit gildi í Aðalþing. Það hefur í för með sér nokkrar breytingar á hlutverkaskipan og skipulagi skólastarfsins.
Staða aðstoðarskólastjóra er lögð niður en stofnað er til nýrrar stöðu pedagogistu sem er uppeldisfræðilegur ráðgjafi í samræmi við hugmyndafræði Reggio Emilia.
Hlutverk deildarstjóra er aukið og skýrt umfram það sem kveðið er á um í kjarasamningi og því fá þeir sem annast deildarstjórn nýtt stöðuheiti sem er þingforseti.
Allir þingforsetar eru að sjálfsögðu leikskólakennarar en ásamt þeim starfa einn til tveir leikskólakennarar á hverju þingi, þeir gegna stöðu verkefnastjóra sem felur meðal annars í sér að þeir eru staðgenglar þingforseta.
Það sem venjulega gengur undir nafninu sérkennsla fær heitið viðbótarkennsla í Aðalþingi en það er gert til að draga fram þá hugmyndafræði sem liggur þar að baki, draga úr aðgreiningu og undirstrika hugmyndir heildtækrar skólastefnu.
Um viðbótarkennsluna starfar teymi sem nú er skilgreint í skipuriti og jafnframt er myndað teymi um starf og stefnu eldhússins.
Drög að skipuritinu voru kynnt fyrir Foreldraráði Aðalþings og leikskólafulltrúa Kópavogs í Júní. Hér er hægt að sækja skipuritið í pdf formi.
Skipulagsdagur mánudaginn 29. ágúst
Mánudaginn 29. ágúst er skipulagsdagur í Aðalþingi. Þá er leikskólinn lokaður. Skipulagsdagar í leikskólum Kópavogs eru fimm en sumum er skipt í tvennt, hálfur dagur í senn.
Upp skorið, eldað og snætt
Uppskeran úr skólagarðinum okkar var drjúg, nokkur kílógrömm af grænmeti og annað eins af kartöflum, aðallega smælki.
Við fórum í garðinn okkar í liðinni viku og skárum kál, tókum upp gulrætur og stungum upp kartöflur.
Í dag matreiddi Bjössi þetta gómsæti fyrir okkur ásamt ofnbökuðm steinbít.
Náttúrulega - hollt og gott.
Nýr leikskólakennari í liðið
Þann 15. ágúst hóf Katrín Jónsdóttir leikskólakennari störf með okkur í Aðalþingi. Katrín kemur til okkar frá leikskólum Borgarbyggðar og mun gegna verkefnastjórastöðu á Lóuþingi. Katrín útskrifaðist frá Fósturskóla íslands 1987 og er þrettándi leikskólakennarinn á Aðalþingi og því eru núna þrír leikskólaknennarar að störfum á Lóuþingi. Við bjóðum Katrínu velkomna í hópinn.
Stuðningsyfirlýsing
Leikskólakennarar í leikskólanum Aðalþingi fara ekki í verkfall en lýsa yfir fullum stuðningi við aðgerðir kollega sinna í leikskólum sveitarfélaganna.
Rekstraraðilar Aðalþings eiga ekki aðild að kjarasamningi milli Félags leikskólakennara og Sambands Íslenskra Sveitarfélaga og boðað verkfall nær því ekki til kennara í Aðalþingi.
Kennarar í Aðalþingi standa auðvitað með stéttarsystkinum sínum hjá sveitarfélögunum í baráttu þeirra fyrir betri kjörum og hafa hug á að sýna stuðning sinn í orði og verki.
Leikskólakennarar í Aðalþingi lýsa jafnframt yfir vonbrigðum sínum með þá lítilsvirðingu sem störfum kennara er sýnd þegar sveitarstjórnarmenn og og embættismenn halda því fram að hægt sé að halda skólunum opnum án kennara. Slíkar fullyrðingar lýsa ekki einungis vankunnáttu og yfirlæti, þær eru einnig til þess fallnar að hleypa illu blóði í deiluna og eru jarðvegur fyrir vantraust og trúnaðarbrest.
Stuðningsyfirlýsingin var samþykkt á fundi allra kennara í Aðalþingi þann 18. ágúst 2011 og undir hana skrifa allir leikskólakennarar og verðandi leikskólakennarar í skólanum alls þrettán einstaklingar.
verður í
Aðalþingi
föstudaginn 20. apríl.
Þá er
leikskólinn lokaður.
Skyggni svifryk- leikur frábær
Vegna svifryks var innidagur í Aðalþingi. Úti var grátt að líta, en inni líf og glaður dagur. Á dögum sem þessum eru sameiginleg rými mikilvæg. Þá er hægt að skipta barnahópunum og allir fá næg verkefni.
Eftir hádegi áttu nokkrar Lóur og líka Spóar leið í ljósaverið. Leikur þeirra og tilraunir með efnið var skráð.
Það er áhugavert að skoða hvernig börn nálgast efnivið, hvaða tilraunir þau gera með hann. Hér að neðan og til hliðar getur að líta tilraunir svifryksdagsins. Það má geta þess að börnin sem eru að leika með segulkubbana eru að byggja ljónaskóg og dýragarð. (KD 19. maí 2011)
Lóur leika í ljósaveri
Í morgun á meðan vindurinn gnauðaði úti, mættu nokkrar Lóur í ljósaverið. Þær léku sér þar með plastkubba á ljósaborðinu. Meðfylgjandi er lítil skráning frá leik og uppgötvunum morgunsins. Það er mjög athyglisvert að fylgjast með hvernig börn leika með kubba. Á það bæði við um viðfangsefnið og aðferðina. Sum vilja stafla, önnur flokka, sum vilja byggja í lóðréttu plani á meðan önnur byggja lárétt og svo er hægt að byggja það sama bæði lóðrétt og lárétt. Sum eru að leika í ímyndunarleik önnur að byggja hluti. Þegar rýnt er í skráningarnar frá því í morgun má sjá þetta allt og auðvitað miklu meira. (KD 19. maí 2011)
Aðalnámskrá leikskóla
Í vetur héldum við í Aðalþingi stutta kynningu á drögum að Aðalnámskrá leikskóla. Nú er sjálf aðalnámskráin komin út ásamt nýrri Aðalnámskrá framhaldsskóla. Vinnulagið við námskrágerðina í þetta sinn er að að fremst er sameiginlegur almennur kafli sem á við um öll skólastigin. Frá og með 4. kafla er svo hin eiginlega aðalnámskrá leikskóla, með sértækum leikskólaáherslum. Við hvetjum foreldra til að kynna sér aðalnámskrána og þær áherslur sem þar koma fram, bera saman við það starf sem unnið er í Aðalþingi. Sérstaklega getur verið áhugavert að skoða hin nýju námsvið leikskólans.
Námsvið leikskóla
Námssvið leikskólans eru læsi og samskipti, þar sem áherslan er á læsi í víðu skilningi, t.d. er lögð áhersla á samskipti, samræður, tjáningu, tækni og fleira, næsta námssvið heitir, Heilbrigði og velliðan þar sem áherslan er á lífshætti og hollustu. Þriðja námssviðið er sjálfbærni og vísindi, en þar kom raungreinaáherslur sterkt fram og síðast námsviðið er svo sköpun og menning. Það er nýung í Aðalnámskrá leikskóla að sérstaklega er fjallað um hlutverk leikskólastjóra, leikskólakennara og annarra starfsmanna. Að sjálfsögðu er kafli um samskipti leikskóla og heimila sem við hvetjum foreldra til að kynna sér vel. Við hvetjum foreldra til að skoða aðalnámskrána og koma með spurningar til okkar ef einhverjar eru. Flestir leikskólar lögðu skólanámskrágerð á hilluna í vetur vegna þess að nýja aðalnámskráin var á leiðinni, nú er hún komin og ekkert að vanbúnaði að vinna að því að smíða, meta og bæta þá námskrá sem fyrir er. (KD 16. maí 2011).
Vorboðar í hesthúsunum
Það er fátt sem gleður unga hugi og hjörtu meira en dýr. Við í Aðalþingi búum við þann stórkostlega möguleika að geta heimsótt hesthús næstum hvenær sem hugurinn girnist. Það er einmitt alveg hæfilega langur göngutúr út í hesthús fyrir vorboðana okkar ljúfu, Lóurnar. Í síðustu viku lá leiðin þangað sem oft áður. Veðrið gott, sól skein í heiði og lundin glöð. Við hesthúsin hittu börnin marga hesta, fundu lyktina að þeim, réttu fram handabakið og kannski smá grasstrá og svo spjölluðu þau um húsin þeirra, hesthúsin. (Nú veit ég ekki hvað mörg tveggja ára börn þekkja orðtakið; að hestahúsa einhverju, eða vera svo svöng að geta étið heilan hest, en það gæti nú verið skemmtilegt umræðuefni).
Á heimleiðinni var áð eins og gert er í lengri göngum, ferðanestið, ávextir og vatn hesthúsað. Í vikunni er ætlunin að leggja í fleiri ferðir i hesthúsin. Annars hafa börnin á Lóunum verið upptekin af smádýrum, krukkur til að veiða flugur og köngulær hafa farið með í útiveruna. Stækkunargler er svo staðalbúnaður til að skoða afurð veiðanna. Þá er hægt að telja t.d. lappir og vængi, finnast flugur ógurlegar og jafnvel stundum ógeðslegar, en aðallega spennandi. (KD 15 maí 2011).




