Leikskólinn Aðalþing
Gleðilegur dagur í Aðalþingi  opnun Harðarhallar
Það var sannkallaður gleðidagur í Aðalþingi þegar við opnuðum nýja gróðurhúsið okkar formlega! Gróðurhúsið sem fengið hefur nafnið Harðarhöll er afrakstur söfnunar sem fór fram síðastliðið vor og við erum ótrúlega þakklát öllum sem lögðu hönd á plóg og hjálpuðu okkur að láta þennan draum rætast. Við hlökkum mikið til að sjá börnin sá, rækta, rannsaka og uppgötva allt það spennandi sem gróðurhúsið hefur upp á að bjóða.
Í tilefni dagsins opnuðum við dyr leikskólans og buðum gestum að kynnast starfinu okkar, skoða námsumhverfi leikskólans og fá smá innsýn í allt það skemmtilega og skapandi starf sem börnin fást við á hverjum degi. Einnig var boðið upp á dýrindis smakk úr eldhúsinu okkar sem vakti mikla lukku.
Það var yndislegt að sjá svona marga, spjalla saman og njóta samverunnar.
Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna og fyrir að gleðjast með okkur á þessum skemmtilega degi!
Kæru vinir,
Í vor stóð foreldrafélag Aðalþings fyrir söfnun til minningar um Hörð Svavarsson, sem var leikskólastjóri á Aðalþingi í 15 ár og lést langt fyrir aldur fram í júní á síðasta ári.
Við erum ótrúlega þakklát fyrir þær góðu viðtökur sem söfnunin fékk og viljum þakka öllum kærlega sem lögðu henni lið. Fyrir það sem safnaðist hefur nú verið keypt gróðurhús sem komið hefur verið fyrir í bakgarði leikskólans í góðu samstarfi við Kópavogsbæ og mun það bera nafnið Harðarhöll, til minningar um Hörð.
Hörður hafði lengi haft áhuga á að koma upp gróðurhúsi við leikskólann og því er sérstaklega ánægjulegt að sjá þessa hugmynd hans og starfsfólksins á Aðalþingi loksins verða að veruleika. Þar munu börnin geta ræktað plöntur og grænmeti, lært og leikið sér og notið hússins um ókomin ár.
Nú langar okkur að fagna þessum áfanga saman og bjóðum því til opins húss á Aðalþingi fimmtudaginn 15. október kl. 1718, þar sem við ætlum að opna Harðarhöll formlega.
Við vonum að sem flestir sem þekktu Hörð og lögðu söfnuninni lið sjái sér fært að koma, skoða Harðarhöll og eiga með okkur góða stund í minningu Harðar.
Fimmtudagur 15. október, kl. 1718
Aðalþing
Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna 2026
Þróunarverkefnið Stilla, um hæglátt leikskólastarf, fékk í dag tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna 2026. Stilla er þriggja ára þróunarverkefni sem við í Aðalþingi erum stolt af að hafa tekið þátt í og tökum mikið með okkur frá þessu ferli.
Gróðurhúsið
Það er mikið gleðiefni að segja frá því að gróðurhúsið sem við söfnuðum fyrir í vor er nú alveg að fara að rísa!
Undanfarið hefur verið unnið að undirbúningi og nú er verið að leggja lokahönd á undirstöðurnar. Ef allt gengur samkvæmt áætlun verður gróðurhúsið sjálft reist í lok vikunnar.
Við erum ótrúlega spennt að sjá þetta skemmtilega verkefni verða að veruleika og hlökkum mikið til að nýta gróðurhúsið með börnunum  til ræktunar, rannsókna, uppgötvana og náms. 🌱🌿
Við viljum um leið þakka öllum sem tóku þátt í söfnuninni í vor og lögðu sitt af mörkum. Án ykkar hefði þetta ekki orðið að veruleika
Sumarfrí