Uppáhaldsáleggið loksins til sölu

Uppáhaldsbrauðáleggið okkar úr eldhúsi Aðalþings verður, í kjölfar fjölda áskorana, loksins aðgengilegt fjölskyldum barnanna í Aðalþingi líka.

Við ætlum að setja í sölu til reynslu næsta fimmtudag og föstudag, svokallaðan föstudagspakka sem samanstendur af veglegri öskju af Hummusnum hennar Heiðdísar og aðra eins öskju með EldGOSAsultunni. Einungis 1495 krónur settið.

Hægt verður að forpanta hér á netinu eða bara ganga frá kaupunum í skólanum þessa daga meðan birgðir endast.


Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook