Leitin að leikskólakennurum heldur áfram

Leikskólakennari eða starfsmaður með aðra frábæra háskólamenntun sem nýtist í starfi, óskast til starfa með okkur í frábærum leikskóla, frá og með haustinu eða fyrr.

Leikskólinn Aðalþing starfar í anda hugmyndafræði Malaguzzi frá Reggio Emilia og við leggjum mikið á okkur við að gera góðan skóla strax, því börn hafa ekki tíma til að bíða, þau eldast bara og fara frá okkur. Við reynum að upplifa ævintýrið í sérhverjum degi og leitum að fleiri leikskólakennurum til að njóta þess með okkur.

 

Vilt þú vinna með mörgum öðrum leikskólakennurum á deildinni?
Væri það ekki draumur?
Við viljum ráða leikskólakennara sem elska að vinna í anda Reggio
eða hafa löngun til að kynnast skapandi starfi,
uppeldisfræðilegum skráningum
og lýðræðsilegum þankagangi í öllu starfi skólans.

Umsóknarfrestur er til 10. júní eða eftir samkomulagi. Hafðu samband við Hörð skólastjóra ef þig langar að forvitnast um starfsmöguleika í Aðalþingi. Síminn er 7703553 og netfangið er hordur@adalthing.is


Svæði

Fyrirspurnir

Leikskólinn Aðalþing  |  Aðalþingi 2  |  203 Kópvogur  |  S. 5150930  |  adalthing@adalthing.is Aðalþing á Facebook