Full Width Page Type Image

 Leikskólakennarar

við verkefnastjórn


Leikskólinn Aðalþing auglýsir lausar stöður leikskólakennara með umsjón
 þróunarverkefna.
Leikskólakennari með umsjón þróunarverkefna er starfsheiti í nýgerðum kjarasamningi
milli rekstraraðila skólans og Félags leikskólakennara.

Helstu verkefni:
Leikskólakennari með umsjón þróunarverkefna starfar á leikskóladeild og er staðgengill þess sem fer með deildarstjórn og hans nánasti samstarfsmaður. Jafnframt sinnir leikskólakennarinn umsjón með þróunarverkefnum sem eru á hans áhugasviði og skilgreind eru í ráðningarsmningi í samvinnu við skólastjórnendur. Stöðunni svipar í mörgu til stöðu verkefnastjóra í öðrum kjarasamningum FL en sá meginmunr er á að starfið og kjörin eru ekki tímabundin.

Þróunarverkefni:
Mikilvægt er að leikskólakennarar í Aðalþingi taki að sér verkefni sem liggja á þeirra áhugasviði en það er í forgangi að ráða kennara til að þróa útikennslu og til að þróa úrræði fyrir barn í skólanum sem er með skilgreindar þarfir tengdar röskun á einhverfurófi. Þær stöður henta annarsvegar þeim sem hafa mikinn áhuga á útikennslu og vilja leggja hana fyrir sig en Aðalþing er staðsett í göngufæri við ósnortna náttúru og fallega skógarlundi. Hinsvegar hentar störfin þeim sem hafa áhuga á að leggja fyrir sig svokallaða sérkennslu og hyggja e.t.v. á framhaldsnám á því sviði.
Starfsfólk Aðalþings vill líka gjarnan fá í hópinn kennara til að sinna öðru þróunarstarfi. Verkefni sem má t.d. hugsa sér er lestur í víðum skilningi, stærðfræði og leikur, hreyfing og lýðræði í leikskóla.

Kjör:
Starfskjör eru samkvæmt nýgerðum kjarasamningi milli Sigöldu ehf. rekstraraðila Aðalþings og Félags leikskólakennara eins og komið hefur fram í fréttum metur Félag leikskólakennara samninginn hagstæðan kennurum og kjarabætur í samningnum umtalsverðar enda hlaupa þær á sex til átta launaflokkum eða um 9 til 12 prósentum. Sömu frábæru lífeyrisréttindi og hjá sveitarfélögunum. Skilgreint frí milli jóla og nýárs.

Hæfniskröfur:
Starfsréttindi leikskólakennara.
Brennandi áhugi á að vinna í leikskóla þar sem ríkir skýr framtíðarsýn.
Áhugi á að starfa í anda Reggio Emilia eða að kynnast slíkum starfsháttum og efla sig í starfi.
Góðir samskiptahæfileikar og glaðlyndi.

Upplýsingar:
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri, Hörður Svavarsson, í síma 770 3553 eða í pósti hordur@adalthing.is
Umsóknarfrestur er til 10. desember en umsóknum skal skila í netpósti til skólastjóra eða með því að fylla út form hér neðar á síðunni.

Skólinn:
Vefurinn www.adalthing.is er lifandi umsögn um skólann og skólastarfið en Aðalþing starfar í anda hugmyndafræði sem kennd er við Reggio Emilia og þangað eru sóttar hugmyndir um lýðræðislega hugsun og starfshætti, uppeldifræðilegar skráningar og nýbreyttni.
Aðalþing er staðsett við eystri mörk Kópavogs í göngufæri við ósnortna náttúru og fallega skógarlundi. Greiðar akstursleiðir liggja til Aðalþings úr öllum áttum. Nokkrar mínútur tekur að aka til Hafnarfjarðar annarsvegar og í Breiðholt á hinn veginn. Strætisvagnastöð er í fimmtíu metra fjarlægð frá Aðalþingi.


Umsóknareyðublað um starf leikskólakennara


 Leikskólakennari með umsjón þróunarverkefna.
 Önnur störf.