Left Sidebar Page Type Image

Leikskólinn Aðalþing skiptist í fjórar 30 barna einingar, sem allar bera þinganöfn. Ástæðan er einfaldlega sú að þar sem leikskólinn er staðsettur í þingahverfinu í Kópavogi, fannst okkur tilvalið að nota þau tengsl til nafngifta á einingar skólans. Á Þingnesi við Elliðavatn var jafnframt eitt elsta þing landsins, Kjalarnesþing.

Og þar sem þetta svæði er mikið náttúrusvæði með Elliðavatnið og Heiðmörkina í næsta nágrenni, þótt við hæfi að nota nöfn algengra fugla sem hægt er að sjá þarna; suma allt árið, aðra á veturna og enn aðra á sumrin. Þannig eru nöfnin Lóuþing, Spóaþing, Hrafnaþing og Rjúpnaþing tilkomin. Fuglar eru líka nokkuð sem börn læra snemma að þekkja og hafa mikinn áhuga á.