Þessi síða og undirsíður eru tileinkaðar skólanámskrá Aðalþings, þar er gerð grein fyrir áherslum í starfi og hugmyndafræði. Í Aðalþingi er áherslan á fljótandi námskrá sem er sífellt í mótun. Á undirsíðum er gerð grein fyrir nálgun við einstaka þætti. Þeir eru ekki tæmandi og nýtt efni getur sífellt bæst við. Starfíð í Aðalþingi byggir á Aðalnámskrá leikskóla og hugmyndafræði sem kennd er við bæinn Reggio Emilia á Ítalíu. Aðalþing tilheyrir samfélagi leikskóla á Íslandi sem á í hugmyndafræðilegri samræðu við skólastarf í anda Reggio Emilia.
Leiðarljós í leikskólastarfinu verða eftirfarandi þættir sem taldir eru vera hvað mikilvægastir í leikskólanámi, en þeir felast í að:
- Hvetja börnin.
- Mikilvægara sé að kenna börnum að spyrja spurninga en að fræða þau með svörum.
- Hjálpa barninu að finna hvað veki áhuga hjá því, hvað því finnst skemmtilegt, þetta á að vera á forsendum barnsins ekki neinna annarra.
- Kenna barninu að takast á við hið óþekkta.
- Kenna barninu að taka ábyrgð á sjálfu sér.
- Kenna barninu að mikilvægasta umbunin er oft sú sem er í einu og öllu - í verkinu sjálfu.
- Kenna barninu að setja sig í spor annarra.
Hér til hliðar eru tenglar á umfjöllun um einstaka þætti í leikskólastarfinu. Má segja að hér sé að finna hugmyndafræðilegan grunn að skólanámskrá Aðalþings.