Matseðill vikuna 21 . maí til 25. maí 2012
| Mánudagur | Þriðjudagur | Miðvikudagur | Fimmtudagur | Föstudagur | |
|---|---|---|---|---|---|
|
Morgun |
Hafragrautur og lýsi |
Hafragrautur og lýsi |
Hafragrautur og lýsi | Hafragrautur og lýsi | Hafragrautur og lýsi |
| Morgun-hressing | Ferskir ávextir og grænmeti |
Ferskir ávextir og grænmeti |
Ferskir ávextir og grænmeti |
Ferskir ávextir og grænmeti |
Ferskir ávextir og grænmeti |
| Hádegi | Grænmetissúpa og brauð |
Soðin Ýsa |
Grjónagrautur og slátur |
Plokkfiskur og rúgbrauð |
Lambakjöt í karrí |
| Hressing | Brauð og álegg |
Brauð og álegg |
Brauð og álegg |
Brauð og álegg |
Brauð og álegg |
| Kjöt og fiskréttir eru bornir fram með grænmeti,kartöflum, Heilhveitipasta, byggi eða hýðishrísgrjónum | |||||
Matarmenning, sýn á heilsu og umhverfi
Við opnun Aðalþings var lagt upp með mjög ákveðna matarstefnu. Áhersla var lögð á að matur væri sem mest unninn frá grunni í leikskólanum. Brauð skyldu öll bökuð og sykur ætti ekki að nota í matreiðslu. Samtímis var lagt upp með að nýta alla afganga eins mikið og hægt er t.d. eru afgangar af grænmeti og kartöflum nýtt í brauðin. Súpugrunnar eru soðnir upp af beinum og grænmetisafskurði og svo framvegis. Afgangar af fiski eru nýttir í plokkfisk og kjötafgangar í kjötbollur. Samtímis var stefnt að því að kaupa grænmeti og korn sem mest beint af bónda. Við vorum svo einstaklega lánsöm að fá í lið með okkur hann Hilmar Þór sem lagði drög að stefnunni og framkvæmd hennar. Hans einkunnarorð voru að maturinn ætti að vera hollur, einfaldur og bragðgóður og fyrst og fremst fyrir börnin. Eftir ár flutti Hilmar til útlanda, börn og starfsfólk hafði miklar áhyggjur af hver tæki við, við vorum afar glöð að fá Aðalbjörn (Bjössa) í staðinn. Frá upphafi gekkst hann undir að viðhalda og þróa þá stefnu sem lagt var af stað með við stofnun leikskólans. Að sjálfsögðu hefur hann bætt við og þróað áfram.
Það er gaman að geta þess að nýlega var matreiðsluþáttur sýndur á ÍNN þar sem Bjössi sýndi listir sínar í eldhúsinu. Við erum stundum spurð hvort maturinn hjá okkur sé ekki dýrari en annarsstaðar. Svarið er nei, vegna þeirra nýtingarstefnu sem við höfum,er hann á endanum mjög sambærilegur, þrátt fyrir að sumt hráefni eins og lífræntræktað grænmeti sé dýrara í innkaupum. Að lokum skal geta þess að við höfum þá stefnu að afganga sem við getum ekki nýtt fær starfsfólkið að taka með sér. (kd 15.okt 2010)



