Nú fara að nálgast jól og við í Aðalþingi erum farin að undirbúa starfið í kring um hátíðirnar sjálfar. Við erum m.a. að skipuleggja vinnutíma starfsfólks. Hluti af starfsfólki ætlar að nýta jólin til að út ótekið sumarleyfi og aðrir hafa fengið leyfi til að vera með ættingjum sínum á landsbyggðinni. Við erum líka að huga að matarinnkaupum og eldun fyrir þennan tíma, við viljum helst ekki þurfa að sóa mat. Með hliðsjón af þessu er nauðsynlegt fyrir okkur að vita hvaða börn mæta um jól og nýár.
Það er reynsla okkar í leikskólum að hluti barna dvelur meira og minna heima á um jól og nýár og vegna þeirrar reynslu viljum við biðja þig að svara eftir farandi könnun