Left Sidebar Page Type Image

Á foreldrafundi sem haldinn var í leikskólanum Aðalþingi 20. október 2009 var ákveðið að stofna foreldrafélag við skólann og kjósa foreldraráð. 


Foreldraráð Aðalþings

 Foreldraráð leikskólans sksipa:

Svala Hilmarsdóttir móðir Hilmars Björns á Rjúpnaþingi og Rut Þórarinsdóttir móðir Ísak Llorens Finnbogasonar á Spóaþingi.

 foreldrarad@adalthing.is

Heimasíða foreldraráðs Aðalþings

 


 

 

Foreldrafélag Aðalþings

Stjórn foreldrafélagsins skipar:

Hildur Imma Jónsdóttir.

foreldrafelag@adalthing.is

Heimasíða foreldrafélags Aðalþings 


Hér pantar þú sælkermatinn

 Í tilefni af jólunum viljum við gefa ykkur tækifæri til að njóta matarsælunnar með okkur.

Falleg gjafapakkning með rauðkáli, lauk, fisksoði og nautasoði allt í 450 ml. einingum kostar einungis 2300 krónur. Þú pantar á vefnum, færð vöruna afhenta 22. desember
og borgar einhverntíma seinna í heimabankanum.

laukur.jpg


 Ég vil kaupa 1 pk. jólakræsingum. 2300 kr.
 Ég vil kaupa 2 pk. af jólakrásum. 4600 kr.
 Ég vil kaupa 3 pk. af jólakrásum. 6900 kr.
 1 askja án pakkningar. 780 krónur.
 1 askja til viðbótar við pakkningu. 530 krónur.
 2 öskjur til viðbóta við pakkningu. 1060 krónur.
 1 askja án pakkningar. 780 krónur.
 1 askja til viðbótar við pakkningu. 530 krónur.
 2 öskjur til viðbóta við pakkningu. 1060 krónur.
 1 askja án pakkningar. 680 krónur.
 1 askja til viðbótar við pakkningu. 430 krónur.
 2 öskjur til viðbóta við pakkningu. 860 krónur.
 1 askja án pakkningar. 680 krónur.
 1 askja til viðbótar við pakkningu. 430 krónur.
 2 öskjur til viðbóta við pakkningu. 860 krónur.
 

Skólastarf milli jóla og nýárs
Mikilvægt er að skrá bókun ef barnið kemur þessa daga

Það færist sífellt í aukana að börn séu í fríi í leikskólanum milli jóla og nýárs.
Undanfarin ár höfum við sett upp spurningalista til að kanna hvaða börn verða ekki í skólanum einhvern þessara daga því það felst hagræðing í því að skipuleggja starfsmannahald og matarinnkaup með réttan barnafjölda í huga.

Foreldrar hafa tekið þessum spurningalistum vel en raunin hefur samt verið sú að börnin sem koma í skólann eru stundum helmingi færri en ætla má af niðurstöðum spurningalistanna.

Nú snúum við því spurningunum við og biðjum þig að bóka pláss fyrir barnið þitt í skólanum milli jóla og nýárs eða þá daga sem þú vilt eiga þess kost að koma með barnið í skólann.

Þetta er einfalt, þú fyllir út formið efst í dálkinum vinstra megin á þessari síðu og smellir á "submit" að því búnu. Við sendum þér svo póst til að staðfesta móttöku á bókuninni.

Við viljum undirstrika að með þessu fyrirkomulag felst enginn þrýstingur á að barnið þitt verði í fríi, við viljum eingöngu nýta úrræði okkar sem best og kjósum frekar að verja fé í efnivið og námsgögn, frekar en í fæði og starfsmannakostnað vegna barna sem ekki koma í skólann.

Það er mikilvægt að foreldrar fái nokkurn umhugsunarfrest og því verður opið fyrir bókunarkerfið til þriðjudagskvöldsins 13. desember.

 

Andlitsmyndirnar
af börnun í jólakortin

Mörgum finnast myndirnar, sem við höfum tekið af börnunum og merkt fatahólfin með, vera mjög fallegar og það skiljum við vel af því við höfum lagt mikið í myndatökuna og vinnslu á myndunum.

Undanfarna daga höfum við fengið margar fyrirspurninr um hvort hægt sé að kaupa myndirnar til að nota þær í jólakort til fjölskyldu og vina. Okkur finnst sjálfsagt að verða við þessum óskum og höfum því sett upp pöntunarform hér fyrir neðan.

Myndirnar verða afhentar í rafrænu formi sem jpeg skrá en það gefur viðtakanda tækifæri til að prenta hana eða fjölfalda í framköllunarstofu í þeim eintakafjölda sem hentar hverjum og einum.

Myndirnar verða sendar á þau netföng sem kaupandi tilgreinir við pöntun. Þær kosta 1495 krónur og berst greiðsluseðill í heimabanka viðtakenda. Gjalddagi greiðslu er 3. janúar 2012.


 

Leikskólinn Aðalþing leggur mikla áherslu á gott samstarf við foreldra og forráðamenn barnanna í leikskólanum, enda vita forsvarsmenn og starfmenn skólans að þessi samvinna er ein af undirstöðunum undir gott leikskólastarf. Persónuleg tengsl og samskipti milli foreldra og forráðamanna og starfsmanna leikskólans eru afar mikilvæg í þessu tilliti, en í samræmi við nútímakröfur nýtir leikskólinn sér líka nútímatækni eins og kostur er til að gera foreldrum og forráðamönnum kleift að fylgjast með því sem börnin eru að gera í leikskólanum.

Í gegnum heimasíðu leikskólans geta foreldrar og forráðamenn í framtíðinni skoðað myndefni og aðrar upplýsingar um leikskólastarfið og þannig fylgst með því hvað barnið þeirra er að fást við. Hvert barn mun hafa sína undirsíðu á heimasíðunni sem foreldrar og forráðamenn hafa aðgang að. Auk þess er hægt að nota þessa heimasíðu til að hafa rafrænt samband við þá deild leikskólans sem barnið dvelur á og koma ýmsum upplýsingum á framfæri, til dæmis um veikindi og aðra fjarveru.

Hugmyndaþing foreldra

Á foreldraþingi í október 2010 kom fram hugmynd um að búa til lítinn gagnagrunn þar sem safnað væri saman upplýsingum um mögulega aðkomu foreldra að starfinu. Meðal annars að verkefnum og sérþekkingu sem foreldrar búa yfir og gætu komið sér vel. Sem dæmi erum við stundum að smíða, stússa með rafmagn, hugbúnað og fleira. Börnin eru forvitin um hluti sem gætu verið daglegt viðfangsefni foreldra. Við þurfum stundum hjálp við að útfæra hugmyndir og verkefni. Hér að neðan geta foreldra komið með hugmyndir og tillögur.


 

Opið hús þann 30. september 2010

 P9305370.JPG

Útivera í Aðalþingi þann 16. apríl 2010

P4160146.JPG

 

Frá sýningunni um Núma þann 15. apríl 2010

P4158819.JPG